Jafnrétti barna og unglinga í íþróttum
Í tengslum við Reykjavík International Games stóðu, Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Háskólinn í Reykjavík fyrir ráðstefnu um jafnrétti barna og unglinga í íþróttum.
Ráðstefnan fór fram fimmtudaginn 23. janúar frá kl.14:00 – 16:00 í Laugardalshöll, sal 1.
Megin áherslur ráðstefnunnar:
- Niðurstöður rannsóknar um aðkomu sveitarfélaga að afreksíþróttum.
- Jafnréttismál innan íþróttafélaga.
- Börn af erlendum uppruna og íþróttir.
- Jafnrétti fatlaðra barna í íþróttum.
- Viðhorf og óskir barna og unglinga.
- Trans fólk og íþróttir.
Fyrirlesarar:
Ágústa Edda Björnsdóttir, Ástþór Jón Ragnheiðarson, Hugrún Vignisdóttir, Ingi Þór Einarsson, Joanna Marcinkowska og Salvör Nordal.
Uppbókað var á ráðstefnuna en boðið var uppá beina útsendingu á Youtube rás Reykjavíkurleikanna.
Erindin sem flutt voru:
Jafnrétti til íþróttaiðkunar. Sýn barna.
Áskoranir transbarna í íþróttum
Raddir unga fólksins
Þátttaka fatlaðra barna í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi
Íþróttir sem vettvangur samþættinga
Fá konur og karlar í boltagreinum jafn stóra sneið af kökunni?
Dagskrá:
Hádegisfyrirlestur:
Þátttaka barna af erlendum uppruna í íþróttum
Að ráðstefnunni standa: